4.12.2008 | 17:13
Á fund seðlabankastjóra
Vinsamlega segið mér hvort ég á að trúa því að Eva Hauksdóttir hafi fengið áheyrn hjá Bankastjórum Seðlabankans. Er þetta rétt?
Ef ekki, hvers vegna er þetta þá í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi?
Ef svo er, hvað eru þessir menn þá að hugsa? Það getur ekki verið að þetta hafi átt sér stað.
Ég lýsi því yfir að ég trúi því ekki að Eva Hauksdóttir hafi fengið fund með þessum mönnum.
Ég verð að láta þetta fylgja:
Eins er með Evu og öðrum þeim fólum
að ekkert hún skilur á aðventu að Jólum
hún galdrar sig hása
og ákallar Ása
og uppmagnar seiða með electron tólum.
Með Evu og kjánum er ýmislegt sammerkt
þau ætla sér máttarvöld hæli í hástert
það almúgur skilur
og brosviprur hylur
er nornin galdrar og níðir sem vitskert
Ekki sú Eva með hýrri er há
hún hendist um bæinn á skafti og sjá
hrafnagallsrausi
úr skálum er ausið
Vísast hún stjórnvöldum víkja skal frá
Athugasemdir
Þetta stunt hennar Evu hefur greinilega svínvirkað. Hún trúir meira á sálræn áhrif seiðsins en yfirnáttúruleg öfl og sem slík hafa áhrifin verið framar vonum fyrst Íslendingar eru farnir að kveða um hana og atburðinn. Annars er ég viss um að hún er til í að kveðast á við þig og þá verður kúturinn stutt undan hjá þér.
Svanur Gísli Þorkelsson, 4.12.2008 kl. 17:21
Þú ert kominn á flug þarna í kveðskapnum undir lokin, Ólafur!
Jón Valur Jensson, 4.12.2008 kl. 17:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.