17.7.2009 | 16:16
Íslandssagan - stiklað á stóru.
Ólíka tíma ég tengi
taldi að með þessi fengi
yfirsýn bogna
sanna eða logna
tugaldir skilja þá Haralda drengi.
Söguna lítum við svona
sveið okkur dýpst þessi kona
Bjart var í fyrstu
í byggðunum nyrstu.
Síðan var bara að bíða og vona.
Engan gat áframhald grunað
aldanna rýran við munað.
Svo illa beisið,
Sjálfstæðisleysið
að ESB valdinu getum við unað.
Arnarson bjáninn hann Ingó
sem ætlaði í víkinga bingó.
Til Íslands sig dreif
og endaði á sveif
með Bruss-elskum krötum í lofgjörðar lingó.
Það eina sem Ingólfur vildi,
var eflaust að há enga hildi,
og Harald að flýja
til Haraldar nýja.
Afleiðing þess bara alls enginn skildi.
Lausakarl norski er laginn
að láta ekki koma á daginn
hve risið er lágt
raunalegt, bágt
að leita til Noregs ef taka þarf slaginn.
Halli skal vextina hækka
og helfarar lántökur stækka.
Augunum gjóum
til útlanda og róum.
Fólki nú tekið er aftur að fækka.
Atvinnuleysi nær algert.
Ennbetur getum þó að hert.
Sundrungin verður
ef samningur gerður
og ESB valdið oss blasir við allsbert.
Fáeina dorgum nú fiska
og flest okkar teljum til miska
ef ESB hrekur
af miðum og tekur
af okkur völd til að mæla og giska.
Smjör okkar kemur úr kúnum
sem kúra á Íslenskum túnum
þær lífrænu skíta,
lúta og bíta
svo láta sig hafa að hleyp'aftur brúnum.
Lömbin um heiðarnar líða
ljúf eftir haustinu bíða.
Þau ætlast í súpu,
með Íslenskri rjúpu.
Lystugri matur ei býðst mönnum víða.
Bændur á Fróni sem búa,
best kunnað að landi að hlúa.
ekki neinn getur,
allt þetta betur.
Brussel nú ilmar sem afurðir kúa.
Ef maður segir sig ekki
ESB járn vilja hlekki.
stattu við orðin,
spilin á borðin.
Síðar svo ei muni kastast í kekki.
Reynist nú fólk vera ratar
Raunar þau flest eru kratar.
En Steingrímur lýgur
um afstöðu og flýgur
Til Brussel að sæka sér málungi matar.
Náttmeri Jóhönnu er nýskeð,
nábít ég fæ við það ógeð.
Sé lágreista krata,
leggja sig flata.
Í Evrópu pólitík Ísland er smápeð.
Kápan mun saumuð úr klæði
Krata af efnahagssvæði.
Sé Fylkingar dóna
sjálfum að þjóna.
Hvað kemur þeim við þó að þjóðinni blæði?
Ef að hann Ingólfur gæti
Undir sig brigði hann fæti.
Noregur freistar
sem notaðir leistar
Allt er það betra en Evrópu blæti.
Athugasemdir
Gaaarghandi schnilld :)
Tófulöpp, 17.7.2009 kl. 16:35
Keppnis.
Yngvi Freyr Einarsson (IP-tala skráð) 17.7.2009 kl. 21:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.