Skaðinn er skeður þó enn megi laga stöðuna

Kæri borgarstjórnarmeirihluti.

Það virðist vera lýðum ljóst að ykkar tími er liðinn. Hann kom reyndar aldrei almennilega en nú er mál að þið rísið upp við dogg, nuddið stírurnar úr augunum og sjáið raunveruleikann eins og hann er. Ef þið slítið ekki þessu ólánlega samstarfi er dagljóst að meirihluta þátttöku Sjálfstæðisflokksins í borgarstjón er lokið um all-nokkurt skeið.

Ég fullyrði að enginn borgarstjórnarflokkur hefur gert önnur eins reginmistök og þessi annars góði hópur sem situr fyrir hönd Sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Þetta samstarf er ekki byggt á sandi. Verra. Þetta samstarf er byggt á Ólafi F. Magnússyni. Það er nú undirstaða í lagi.

Í öllum bænum gangið út úr þessu samstarfi hið snarasta til að bjarga því sem bjargað verður.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband