9.1.2012 | 09:03
Dýrasta ljósaskilti í heimi
Núna hef ég farið í Hörpu einungis tvisvar og er dálítið hugsandi eftir það.
Fyrst var það Todmobile. Þau frábær en hljómur hreint út sagt ömurlegur á miðjum sjöunda bekk. Ég ákvað að við hefðum bara setið of nálægt og fjær hefði ábyggilega verið betra. Ok, það var vonbrigði.
Á föstudag var það svo árlegir Vínartónleikar. Fyrstu svalir fremst. Hljómsveitin beint af augum í þægilegri fjarlægð. Eilítið þunnskipuð hljómsveit með einungis 67 manns á sviði. Ný og breytt uppstilling hljómsveitarinnar með bassana sitjandi vinstra megin í stað standandi hægra megin og ýmislegt öðru vísi en áður var. Mér fannst eins og það vantaði heila hljómsveit í viðbót til að fylla salinn. Fallegur hljómur, eilítið ýktur í botninn, en óskaplega lítið af honum.
Er hljóðfólkið ekki búið að læra á salinn? Er salurinn svona erfiður? Þetta er hroðalega svekkjandi.
Þegar svo við þetta bættist frekar bragðlaust verkaval sem samanstóð að mestu leyti af ýmsum hlutum Leðurblökunnar í dauflegum flutningi velti ég fyrir mér hvort hér hafi orðið dýrt slys.
Mér finnst ljósin útvortis falleg en ef þetta hús er bara ljósaskilti hefði verið hægt að fara ódýrari leið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2011 | 12:58
Núna er bannað að fyrirgefa og kærleikur bannaður.
Prestur í Hafnarfirði féll marflatur á svelli slakrar rökvísi þegar hann fullyrti eftirfarandi efnislega: Í faðirvorinu er okkur kennt að fyrirgefa. Mannréttindanefnd Reykjavíkur vill ekki trúboð í skólum. Þar með er börnum kennt að fyrirgefa ekki. Það er nánast skiljanlegt að innvígður jésúkarl fari á svig við rökvísi í ljósi þess hvað hann hefur kosið að ævistarfi. Er ekki svo að Trú tekur við þar sem skynsemi sleppir og því kannski ekki nema von að svona trúverðir sveigi hlutina til.
Það er aðeins erfiðara að skilja þegar málsmetandi menn, sem almennt flytja hófsamt mál með stillingu, missa sig í mistúlkunum. Þetta gerðist þegar Þorsteinn Pálsson skrifaðir "Tími þótti vera kominn til að takmarka kærleikshugsjón kristinna manna í skólum höfuðborgarbúa." Fleira í þessum dúr skrifaði Þorsteinn jafn hæpið í pistli sem birtist 24. des hérhttp://www.visir.is/vefur-thjodar-og-kirkju/article/2011712249987
Restin af annars vönduðum pistli er reist á þessum grunni. Það er ver.
Ekki ætla ég að hætta mér út á þá hálu braut að færa rök fyrir eða gegn trúboði enda er það alfarið önnur umræða. Ég harðneita að þegja undir svona málflutningi. Rökvillan er í ætt við þetta: Mamma kennir barni að hjóla. Skólastjórinn vill ekki að það sé hjólað innanhúss. Það er bannað að hjóla.
Þessi röksemdafærsla slær því föstu að aðeins mæður kenni hjólreiðar og það í bland við bann skólastjórans útvíkkast í að ekki skal hjólað.
Ef eitthvert fólk vill láta uppblásna preláta og forpokaða hempuskjóna innprenta börnunum einhvern sannleika lífsins mun það gerast en það ætti að vernda börn hinna frá þeim kringumstæðum eins og kostur er.
Ég er ekki að finna að skoðunum Þorsteins Pálssonar, eða annara, varðandi aðkomu Þjóðkirkjunnar að skólastarfi eða skoðunar fólks á ákvörðun Mannréttindanefndarinnar. Ég er fyrst og fremst að benda á að annað hvort skortir fólk skilning eða það afbakar málin vísvitandi. Þessu á ég erfitt með að trúa uppá Þorstein Pálsson og skrifa þetta því á reikning fljótfærni hans eða misskilning.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2011 | 12:57
Gæti ekki verið verra
Þá er versta mögulega niðurstaða formannskosningar í Sjálfstæðisflokknum orðin staðreynd.
Mitt spámannsnef var búið að segja mér að, þvert á það sem ég hefði óskað, yrði Hanna Birna undir í þetta sinn, en ég hafði gert ráð fyrir meiri mun en þetta. Þessi niðurstaða er skammarleg og í besta falli vandræðaleg fyrir sitjandi formann.
Skoðanakannanir innan og utan Sjálfstæðisflokkins voru allar búnar að spá Hönnu Birnu sigri en það er ljóst að það fólk sem er tilbúið að greiða fyrir að sitja á Landsfundi er það fólk sem er mest virkt í stjórnmálum og í starfi flokksins. Þetta er það fólk sem er hallara undir forystuna en almennir Sjálfstæðismenn eða almenningur í landinu og því er ljóst að mikil og almenn óánægja er með forystusveit flokksins fyrst að ekki nema rétt rúmlega helmingur harðasta kjarnans styður formanninn.
Hanna Birna gerði alvarleg mistök með því að bíða með að tilkynna um framboð sitt til formanns þar til Landsfundarfulltrúar höfðu verið valdir. Hefði hún gert þetta fyrr hefði ég farið á Landfund til að styðja hana og þar með vonandi frekari uppstokkun í forystuliðinu.
Formaður stjórnmálaflokks sem ekki hefur meiri stuðning meðal flokksmanna en þetta getur aldrei komið fram eins og hann njóti trausts. Það er ekki nóg að aðeins helmingur innvígðra sauðtryggra sé innanborðs. Stjórnmálaafl sem stærir sig af því að rúma mikla breidd í skoðunum getur ekki flaggað formanni sem svona lítinn stuðning hefur.
Það er ekki bara formaðurinn sem ekki er treyst. Það er stór hluti af framlínusveit Sjálfstæðisflokksins sem við höfum illan bifur á. Sá hópur sem fer fyrir Sjálfstæðisflokknum og kannast ekki við að eiga sök á nokkrum sköpuðum hlut í hruninu er núna að valda því að formaðurinn rétt lafir og flokkurinn hefur skammarlega lítið fylgi við þær aðstæður sem núna ríkja.
Hversu trúverðurgt er það að halda því fram að formaðurinn hafi bara verið sendisveinn fyrir Vafning og hafi lítið vitað um að það var verið að ræna Sjóvá. Hversu trúverðug er fyrrverandi varaformaður þegar hún segist ekkert hafa vitað um fjármál mann síns. Hversu trúverðurgur er útgerðarmaður sem greiður sér hudruð miljóna arð úr fyrirtæki sem afskrifa þarf 2,6MA af á sama tíma. Hversu trúverðugur er sá sem sat í stjórn Sjóðs 9. Núverandi varaformaður er nytsamur sakleysingi sem var kosin af því að það vantaði forsvara landsbyggðarinnar og leðréttingu á kvennahlutfalli í framlínuna.
Þetta er alls ekki tæmandi upptalning þeirra sem eru í framvarðasveitinni og átta sig ekki á ástandinu. Ég þekki ekkert þeirra persónulega og dettur ekki í hug að gefa í skyn að hér sé um slæmt fólk að ræða. Vandamálið er að þau einfaldlega sjá ekki að þeirra fortíð rýri þeirra getu til að fara fyrir Sjálfstæðisflokknum.
Ég tala fyrir sjálfan mig, en veit af mjög mörgum sem eru sama sinnis, þegar ég segi: með þetta fólk í forystu fyrir Sjálfstæðisflokknum mun ég alls ekki mæta á kjörstað næst eða þá aðeins til að skila auðu.
Það er ekkert annað stjórnmálaafl sem ég get hugsað mér eða sem samræmist mínum skoðunum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2011 | 10:41
Svona dálítið eins og "Let them deny it"
Nixon kunni að láta menn finna til tevatnsins. Eitt af því sem hann notaði til að koma höggi á sína andstæðinga var að bera þá sökum, hversu fáránlegar sem þær voru, og láta þá síðan eyða púðri og trúverðugleika í að neita. Mér líður dálítið svipað þegar ég núna fæ í annað sinn skeyti í boði Svandísar Umhverfis. Bifreiða og úrvinnslugjalds álagning er komin í hús í annað skipti á árinu. Í bæði skiptin eru þetta tæp tuttugu og fimm þúsund. Hvaðan er sú upphæð komin og hvað réttlætir hana?
Málið er að þetta er ekki stærð sem er byggð á neinu öðru en skattpíningaræði núverandi ríkisstjórnar. Það er til einhver kolefnisstuðull sem stuðst er við þegar þessi gjöld eru lögð á. Þessi stuðull er ekki endilega til fyrir allar tegundir bifreiða og þegar hann er ekki þekktur er lagt á eitthvert gjald sem að miðist við þyng bifreiðar. Gjaldið er haft eins hátt og hægt er og miðað við versta mögulega stuðul sem bifreið í hverjum þyngdarflokki gæti haft. Ef ég er ekki sáttur þarf ég að sanna að gjaldið sé rangt. Ég þarf sjálfur að sanna að ég sé ranglega skattpíndur af yfirvöldum. Ég þar að leggja út í auka kostnað og vinnu við að afla mér gagna sem sanna að yfirvöld leggja á mig of háar álögur.
Það er ekki nóg að bara einhver geðþóttaákvörðun sé látin liggja til grundavallar álagningar þegar ekki liggja fyrir upplýsingar um koltvísýringslosun heldur fylgir lögunum ótrúleg þrenging á rétti mínum til að fá leiðréttingu. Ég hef ekki nema 30 daga frest til að fá leiðrétt þegar á mér er brotið með þessari álagningu. Fær þetta staðist? Getur yfirvaldið í Umhverfisráðuneytinu valtað yfir mig og sagt mér að ef ég ekki átta mig eða ver mig innan þrjátíu daga skuli ranglætið bara standa eins og því er úthlutað. Djöfulsins dónar.
Hvað gengur á? Er það eðlilegt að Umhverfisráðherra geti bara yfirskotið eftir geðþótta og skattpínt í þeirri von að ég hafi ekki efni á að afla mér gagna sem sanna að ranglega sé að þessu staðið. Eru það eðlileg vinnubrögð og framkoma við þegna landsins að leggja á gjöld sem eru vísvitandi of há í þeirri trú að sem flestir bara borgi og þegi.
Nú skilst mér að Umferðarstofa taki að sér að finna út réttan stuðul fyrir hverja bílategund fyrri sig en þessar upplýsingar eru síðan seldar. Ég get sem sagt keypt réttar upplýsingar af US og vopnaður þeim þarf ég að kæra niðurstöðu Svandísar dóttur ICESAVE höfðingjans. Ef mark er tekið á minni kæru er gjaldið lækkað og mismunurinn á "réttri" upphæð og ofáætlaðir upphæð sem hefur verið greidd verður síðan vonandi endurgreiddur.
Þetta er óþolandi líður sem þjóðin fékk í hausinn eftir síðustu kosningar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.6.2011 | 16:01
Sykurskert
Þessi yfirgangur í Jóni Gnarr og félögum er ótrúlegur.
Þessi frétt er fáránleg. Það er ekki verið að lækka neitt! Það er verið að hækka minna en til stóð. Í ofanálag er okkur boðið uppá minni þjónustu ef við viljum fá meiri lækkun á hækkuninni.
Hjá mér háttar þannig til að mínar tunnur standa á lóðarmörkunum. Það er að segja úti við innkeyrsluna sem liggur að bakhúsi fyrir aftan mitt hús. Innkeyrsluna á Borgin. Ég trúi illa að bakhúsið verði neytt til að greiða aukreitis fyrir sorphirðu þó að lóð þess húss sé meira en 15 metra frá götu einfaldlega af því að þau eiga þess ekki kost að hafa sorpílát sín nærri götu. Ef það hús þarf ekki að greiða þarf ég það ekki heldur í nafni jafnræðis. Nú er að sjá hvernig þetta verður framkvæmt.
Kókómjólk er í grófum dráttum mjólkurafurð með alls kyns aukabúnaði og bragðefnum. Meðal þeirra er ótæpilegt magn af sykri. Reyndar er líka á boðstólunum kókómjólk sem ekki er búið að bæta alveg jafn miklum sykri í. Sú er kölluð sykurskert. Þetta er jafnast á við vitleysuna sem borgin lætur frá sér núna. Hækkun er kölluð lækkun af því að hún er minni en hún átti að vera.
Orðið vitskert kemur upp í hugann.
|
Borgin lækkar sorphirðugjald |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.6.2011 | 15:13
Það þarf fyrst og fremst að vera samræmi
Lögreglan vomir yfir atburðum í Laugardalhöll og sektar mikinn fjölda bíla sem lagt er upp á gras meðfram aðkeyrslu að höllinni. Bílastæði eru takmörkuð og þarna eru þessi bílar ekki fyrir.
17. júní var mörgum bílum lagt uppá grasið meðfram Hringbraut. Þetta var reyndar mikið færri bílar en venjulega en ég sá ekki eina sekt á þessum bílum.
Mér er bara spurn, hvaða regla gildir í þessu. Er þetta bara geðþóttaákvörðun?
|
„Lögreglan sýni skilning“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.6.2011 | 12:28
Hvar í ósköpunum er umboðsmaður skuldara
Hefur eitthvað spurst til umboðsmanns skuldara? Er umboðsmaðurinn að gera eitthvað annað og gagnlegra en að samsinna fjármálafyrirtækjum í afstöðu þeirra til endurreiknings lána? HÍ og HR létu fjármálafyrirtækin reikna tvö eins lán á mismunandi forsendum að beiðni US. Stærðfræðingar háskólanna komust að þeirri niðurstöðu að þetta væri svona nánast eins framkvæmt en tóku ekki afstöðu til lagalegra forsendna fyrir aðferðinni. Niðurstaðan var þar með bara að fyrst allir gera eins þarf ekki að fjölyrða um málið og "Umboðsmaður skuldara hefur ekki heimild til að að kveða upp úr um hver sé hin rétta aðferðafræði samkvæmt lögunum. Umboðsmaður skuldara hvetur fjármálafyrirtæki til að láta lántakendur njóta vafans við endurútreikning lána." Takið eftir "...hvetur...". Þetta er svona "plís, vertu næs"
Hvaða þvæla er þetta? Er það ekki hlutverk US að leita réttar skuldara og koma fram fyrir þeirra hönd. Er bara nóg að spyrja þá sem við teljum brjóta á skuldurum hvort þeir telji sig gera það og svo bara sætta sig við svarið?
Má ég þá biðja um að þetta embætti verði lagt niður og Hagsmunasamtökum heimilanna eða Samtökum lánþega verði falið að standa vörð um þá sem eru, með dyggri aðstoð stjórnvalda, að verða undir í baráttunni við fjármálafyrirtækin. Þessi samtök gera alla vega eitthvað í málunum en sitja ekki bara á rassgatinu og taka því sem þeim er rétt.
Þegar fjármálafyrirtækin senda handrukka gera SL eitthvað í málinu: http://lanthegar.is/?p=12586
Þegar stjórnvöld gefa út reglur, sem ekki standast lagalega um hvernig skuli standa að endurútreikningi lána, semda HH kvörtun til ESA, og fylgja henni eftir með ferð til Brussel.
Hvað gerir umboðsmaður skuldara? Jú, afgreiðir 27 mál af tæplega 3000 sem hafa borist. Annað ekki. Ekkert frumkvæði, enginn dugur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2011 | 16:34
Ekki sæi ég eftir honum.
Er ekki hægt að fá manninn til að flytja til Grænhöfðaeyja bara strax. Eina kolvitlausa ástæðan til að kjósa með því að samþykkja Icesave er að maður er búinn að fá leið á því. Það er nákvæmlega það sem svavar Gestsson gerði þegar hann nennti ekki að hafa þetta hangandi yfir sér og kom hróðugur aftur til Íslands með upphaflega samninginn.
Hann viðurkennir að hann skilur ekki málið og ætlar að taka afstöðu í þessu stórmáli af því að honum leiðist. Hann sagði sjálfur að hann þyrfti að komast yfir Icesave for Dummies. Ég er farinn að hallast að því að það sér rétt.
Ég held honum væri nær að halda í sér bullinu og hætta að tala niður gjaldmiðil Íslands. Burtséð frá hvað honum finnst um krónuna þá hlýtur það að teljast í hæst máta óábyrgt, og ekki beinlýnis þjóðhagslega hentugt að grafa undan gjaldmiðli landsins.
|
Bölsýnn borgarstjóri í Vín |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.2.2011 | 15:27
Rólegan æsing
Eru menn ekki að gleyma dóttur samningamannsins slynga. Svandís á eftir að finna einhverja leið til að stoppa þetta.
Menn hljóta að sjá það í hendi sér að ef hér er tækifæri til að skapa atvinnu mun Svavarsdóttir ekki hvílast fyrr en hún nær að stoppa framtakið.
|
17 milljarða fjárfesting |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.12.2010 | 16:35
Ekki græt ég þessa stjórn
Við þurfum að losna undan þú óstjórnar oki sem ríkisstjórnin er að leggja á okkur. Það vill svo til að ég er í nokkru sammála Lilju Mósesdóttur og ég held að það þurfi að fara varlegar í afturhald og niðurskurð en nú liggur fyrir að eigi að gera. Það er vel gerlegt að skattleggja inngreiðslur á séreignarsparnað og gera það bara tímabundið. Það er lítið flóknara en að merkja inngreiðslur og halda utan um ávöxtun þeirra sérstaklega. Tölvur gera þetta sérlega vel.
Við þurfum að losna við þetta lið sem er á alþingi núna, og þá er ég að meina aðra og fleiri an bara ríkisstjórnina og hennar ára. Ég er ekkert síður að meina suma þingmenn stjórnarandstöðunnar. Það er hneisa að Þorgerður Katrín skuli hafa snúið aftur. Það er ótrúlegt að Bjarni Benediktsson skili sitja sem fastast í ljósi stöðu sinnar. Marga fleiri má tína til sem eiga meiri og minni þátt í því ástandi sem núna ríkir. Gerendurnir utan veggja alþingis er vel þekktir og ættu að sitja inni þó það sé ólíklegt að það gerist. Þeirra mannorð og æra er að eilífu farinn og það verður líkast til ekki mjög margt annað sem þeir tapa. En það sem við getum haft bein áhrif á er að þeir sem báru ábyrgð á þessu eftirlitsleysi og glæpsalega framferði hér ríkti far frá völdum með skömm.
|
Telur óvíst að stjórnin lifi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)




baldher
gattin
elfar
ea
vidhorf
zumann
jakobk
kari-hardarson
netborgari
martasmarta
tofulopp
alvaran
pallvil
rynir
fullvalda
duddi9
sij
nordurljos1

