30.5.2012 | 15:32
(Vonandi) Eftirmæli forseta
1. kafli. Karakter.
Sómaelskur, siðafjall
síst um græsku væni.
Óla tylliá æðsta stall
ofar hæsta mæni.
Perla vor í pólitík
prinsinn allra þjóða.
Allt í senn er unaðsrík
eðalkempan rjóða.
Ólaf stöðvað ekkert fær
allra þjóða sjarmi.
Lýsir heiminn ljósi skær
ljómi af hans hvarmi
2. kafli. Fræðastörf.
Forsetann í fremstu röð
fyrstan meðal svanna.
Rjóði tröð hans rósablöð
risa lágra manna.
Annan hafa engar fætt
eðal snilling þjóðir.
Hjarðir sínar hefur frætt
hæsti sálu bróðir.
Innblástur hans æðsta þrá
um allt sem muni henta.
Fyllir þjóðar fræðasá
frækin kempa mennta.
Einatt reynir oss að tjá
allt sem er í tísku.
Fræðir sem oss fræða má
frá goðunum til Grísku.
Fótskör við hans frómu tær
feikileg er þekking.
Er það mönnum eiður sær
ekkert þar er blekking.
3. kafli. Stjórnvísi
Al- á þingi eitt sinn reit
einhver lög um miðla.
Visku kempan við þeim leit
og vildi kerfi riðla.
Fjölmiðlar á fárra hönd
fannst þeim síst í lagi.
Reist þeir fengu ekki rönd
við reistu Óla slagi.
Úti í löndum einhver hreif
auð í sjóði víða.
ICE- frá nauðung okkur SAFE
ýtti burtu kvíða.
Þjóðin hélt að þing sé á
þingi til að ráða.
Regin brúar röðull gjá
og ræður fyrir báða.
Ekki finn á okkar jörð
annan svona lukkudíl.
Kemst þó næst að kalla Njörð
kæra besta Kim Jung Il.
4. kafli. Hnignunin
Von í brjósti verður rýr
veika brýtur hlekki.
Skilaboðin eru skýr
skildi þau samt ekki.
Pólitíkur glepur glys
glamúr, speglar, reykur.
Fyrri tíðar fremsta blys
frelsi núna eykur.
Víst er nú að von er smá.
Vætlar tár af hvarmi.
Ekkert þurrka augu má
af þeim mikla harmi.
Ekki getum Ólafslaus
att við gæfu kappi.
Víst er nú í Víti fraus
verður neitt að happi.
Ef að kempan aftur snýr
óbreytt eða kosin.
hugmunstór og hjartahlýr
hressir aftur brosin.
5. kafli. Sannleikurinn.
Sviðin er mín sómakennd
sannleik rúinn kraftur.
Fjögur sinn af fanti brennd
fram sig bíður aftur.
Aftur getur ekki sagt
alveg skýrt frá málum.
Út af því er alltaf lagt
og allir eru á nálum.
Eflaust glöggur alltaf sér
allt er þetta skrítið.
Fjandinn sjálfur fjarri mér
fari hann í bítið.
Athugasemdir
Þú þarft virkilega á hjálp að halda.....................
Jóhann Elíasson, 30.5.2012 kl. 17:00
Óla ei til óláns treg
ofurkvendið Þóra
Seiðandi og serðileg
Samfylkingar...kona
Jón Steinar Ragnarsson, 30.5.2012 kl. 18:45
Rétt er það. Líkast til þarf ég á hjálp að halda. Getur þú leiðbeint mér hvar ég finn hana?
Ólafur Tryggvason Þorsteinsson, 30.5.2012 kl. 21:02
Jón Steinar með bullandi standpínu.
Þú getur örugglega ekki fengið hjálp hjá vitlausa Gaflaranum, kannski geturðu tekið hann með þér ef það er möguleiki að bjarga þeim auma ræfli
Doddi dóni (IP-tala skráð) 31.5.2012 kl. 00:19
Dézkoti zkemmtileg kveðzkepna þú...
Steingrímur Helgason, 2.6.2012 kl. 00:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.