Skaupið

Meðan ég man. Skaupið var eitt það besta í langan tíma. Skemmtilega útfært og fjölbreytt þó ég hafi ekki endilega skilið öll atriðin.

Reyndar hefur mér fundist skaupið oftar en ekki gott undanfarin nokkur ár eða alltaf meðan Skarið Skrípó sá um það.

Öðru máli gegndi um yfirlit Stöðvar 2. Mér leiðist afskaplega þegar umfjöllunin er lituð með því að taka afstöðu til þeirra frétta sem verið er að rifja upp. Kjánalegt og ótrúverðugt burtséð frá hvern var deilt á í hvert skipti. Árið er uppfullt af fréttaskýringaþáttum og umfjöllun. Eina sem þurfti að gera er það sem RÚV gerði. Rifja upp.

Gleðilegt ár. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband