Skammastu þín Skúli

Mikið ertu lítill maður Skúli Helgason.

Segist hafa lagst yfir öll málsatriði og farið vandlega yfir málið og svo kemstu að þessari niðurstöðu. Þín rök í málinu voru eins vitlaus og hægt er að hafa þau.

Geir skal ákæra af því að hann var verkstjórinn.

Björgvin skal ekki ákæra af því að hann vissi ekkert, þó honum bæri skylda til að vita.

Ingibjörg gerði ekkert af sér með því að halda upplýsingum frá Björgvini af því að Geir átti að sjá til þess að það væri ekki gert! 

Geir á samkvæmt þessu að bera ábyrgð á afglöpum Ingibjargar en ekki hún sjálf.

Þú ert ómerkilegur maður Skúli Helgason.


mbl.is Mál höfðað gegn Geir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Sammála þessu.  Þetta heldur ekki vatni hjá Skúla.   Hinsvegar finnst mér líka aumkunarverður málflutningur hjá mörgum sjálfstæðismönnum þegar þeir tala um að það sé nóg að þessir aðilar axli pólitíska ábyrgð.  Það þurfti að drag Geir og Ingibjörgu með töngum út úr stjórnmálum og væntanlega hefðu þau ekki hætt nema vegna sinna veikinda.  Þorgerður Katrín, Guðlaugur Þór o.fl. sitja sem fastast.

Það hefur aldrei verið neitt til sem kallast pólitísk ábyrgð í bananalýðveldinu Íslandi.  Þetta auma sker er gjörsamlega rotið af spillingu og hefur alltaf verið.  Jafnvel í svörtustu Afríku eru vandfundinn jafn spillt og rotinn þjóðfélög eins og á skerinu.

Guðmundur Pétursson, 29.9.2010 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband